|
|
| |
| Skemmtileg máltæki sem vel
eiga við |
| |
| Sendu inn máltæki |
| - | Sjaldan fellur flaskan langt frá rónanum |
| - | Róm var ekki brend á hverjum degi |
| - | Sjaldan er ein báran skökk |
| - | Allt er hey í harðindum nema Hey babba lúlla she's my baby |
| - | Betra er að ráða menn með réttu ráði en ráðamenn |
| - | Blankur er snauður maður |
| - | Betra er langlífi en harðlífi |
| - | Sá hlær oft sem víða hlær |
| - | Betri eru læti en ranglæti |
| - | Oft er virtur maður ekki virtur viðlits |
| - | Enginn veit sína kæfuna fyrr en öll er |
| - | Betra er að standa á eigin fótum en annarra |
| - | Þegar neyðin er stærst er hjálpin fjærst |
| - | Oft er grafinn maður dáinn |
| - | Oft veldur lítill stóll þungum rassi |
| - | Blindur er sjónlaus maður |
| - | Bændur eru bændum verstir og neytendum líka |
| - | Margur geispar golunni í blankalogni |
| - | Sá er talinn vel geðveikur sem Guð talar til |
| - | Betra er að hlaupa í spik en kekki |
| - | Oft láta bensínafgreiðslumenn dæluna ganga |
| - | Oft fýkur í menn sem gera veður útaf öllu |
| - | Margur fer yfir Strikið - í Kaupmannahöfn |
| - | Sjaldan eiga fiskar fótum fjör að launa |
| - | Betra er að drepa tímann en sjálfan sig |
| - | Oft kemst magur maður í feitt |
| - | Margur leggur "mat" á disk |
| - | Betra er að ná áfanga en að ná fanga |
| - | Sá er talinn trúaður sem talar til Guðs |
| - | Oft fer presturinn út í aðra sálma |
| - | Oft fara bændur út um þúfur |
| - | Oft eru bílstjórar vel á veg komnir |
| - | Oft er lag engu lagi líkt |
| - | Oft hrekkur bruggarinn í kút |
| - | Betra er að fara á kostum en taugum |
| - | Hagstæðara er að borga með glöðu geði en peningum |
| - | Oft verða slökkviliðsmenn logandi hræddir |
| - | Betri eru kynórar en tenórar |
| - | Margur boxarinn á undir högg að sækja |
| - | Lengi lifa gamlar hræður |
| - | ekki er jakki frakki nema síður sé |
| - | Barnið vex en brókin ekki |
| - | blindur er bókalausmaður | |
| |
|