| Heim | ||
| Fréttir | ||
| Máltæki | ||
| Netfangaskrá | ||
| Myndasafn | ||
| Síður Önfirðinga | ||
| Sögusíðan | ||
| Sólbakki 6 | ||
| Ingjaldur | ||
| Hafðu samband | ||
Fréttir
08. 02. 2012. kl. 05:31 - Ríflega 100 manns á þorrablóti í Reykjanesi
Reykjaneshjónin Jón Heiðar Guðjónsson og María Guðmundsdóttir. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.
08. 02. 2012. kl. 05:31 - Ríflega 100 manns á þorrablóti í Reykjanesi
Ríflega 100 manns mættu á þorrablót sem haldið var í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp á laugardagskvöld. Góð stemmning var á blótinu en meðal gesta mátti finna hóp kajakræðara frá Ísafirði, starfsfólk Landflutninga og starfsfólk tannlæknastofunnar á Ísafirði.
Að sögn Jóns Heiðars Guðjónssonar hótelstjóra, komu gestirnir víða að. „Þetta var mikið fólk af Vestfjörðum en það komu einnig gestir frá Siglufirði og frá Reykjavík. Halli Reynis spilaði fyrir dansi og fólk dansaði langt farm eftir nóttu,“ sagði Jón Heiðar. Haldin eru fjögur þorrablót í Reykjanesi á Þorranum og eru um 70-100 manns á hverju blóti.
Næsta blót verður:
10. febrúar - 12. febrúar Allir hjartanlega velkomnir
- Gisting í 2 nætur
- Súpa, brauð og salatbar á föstudag
- Morgunverður á laugardag og sunnudag
- Þorrahlaðborð á laugardag
- Lifandi tónlist
Verð: 14.600 kr. (pr. mann)
Hér skráð af: Björn Ingi Bjarnason.
nánar
07. 02. 2012 kl. 10:57 - Önfirðingur í Háskólaráði

Önfirðingurinn María Rut Kristinsdóttir.
07. 02. 2012 kl. 10:57 - Önfirðingur í Háskólaráði
Vaka bar sigur úr býtum í kosningum til Stúdentaráðs og Háskólaráðs Háskóla Íslands. Kosið var á miðvikudag og fimmtudag í síðustu viku og úrslit lágu fyrir um miðnætti þann dag.
Úrslit kosninganna urðu eftirfarandi:
Stúdentaráð: A-listi Vöku fékk 2.499 atkvæði, eða 55,86% og fimm menn kjörna. V-listi Röskvu fékk 1.975 atkvæði, eða 44,14% og fjóra menn kjörna. Auð atkvæði voru 333 (6,93%) og kosningaþátttaka var 4.807, eða 31,62%.
Háskólaráð: A-listi Vöku fékk 2.056 atkvæði og einn mann kjörinn. Í efsta sæti listans var Önfirðingurinn María Rut Kristinsdóttir og fékk glæsilega kosningu í Háskólaráð. V-listi Röskvu fékk 1.763 atkvæði og einn mann kjörinn. Auð atkvæði voru 346 og kosningaþátttaka var 4.165 eða 27,40%.
Skráð af: Björn Ingi Bjarnason.
nánar
07. 02. 2012 kl. 10:17 - Forsetaefnin koma úr klettunum

.Magnea Guðmundsdóttir leikur á gítar á Stútung á Flateyri árið 2000. Á sviðinu er einnig Guðrún Jónsdóttir. Ljósm.: BIB
07. 02. 2012 kl. 10:17 - Forsetaefnin koma úr klettunum
Að vilja að forsetinn sitji sem lengst á Bessastöðum, sakir snilldarleiks í baráttu við erlendar stórþjóðir, lýsir mikilli vantrú undirskriftafólks á íslenskri þjóð og nánast einfeldingslegri vanþekkingu. Framganga Ólafs Ragnars er ekkert einsdæmi. Jafnan þegar mikil tíðindi gerast fylgir því að fram á sjónarsviðið koma óvænt – nánast eins og huldufólk út úr kletti – einstaklingar sem eru sniðnir í hlutverk leiðtogans. Standa beinlínis undir væntingum fólksins og koma stórum hlutum til leiðar. Um þetta getum við nefnt ýmis dæmi.
Árið 1973 hófst eldgos í Vestmannaeyjum og þá var það Magnús H. Magnússon bæjarstjóri sem talaði kjark í fólkið og sá sífellt fleiri nýja möguleika opnast eftir því sem eldgosið og eyðingarmáttur þess varð hrikalegri. Árið 1975 þegar konur á Íslandi tóku á sig rögg og fóru að berjast fyrir réttindum sínum var nefnt að kona ætti að taka við búsforráðum á Bessastöðum. Og þegar sviðið var autt snemma árs 1980 var nefnt í látlausu lesandabréfi að Vigdís Finnbogadóttir væri ágætt forsetaefni. Framhald sögunnar þekkja allir. Ný viðhorf voru að myndast og kona nýrra viðhorfa var kjörin forseti. Og kannski eru allir líka búnir að gleyma snjóflóðinu á Flateyri árið 1995 þar sem í forsvari byggðarlagsins var frábærlega frambærileg kona, Magnea Guðmundsdóttir, sem stappaði stálinu í alla og talaði af kjarki og einurð. Algjörlega óþekkt kona varð þjóðhetja á einni dagstund – enda vel til forystu fallin. Fleiri svona dæmi um sérstakt forystufólk mætti nefna.
Í eftirleik hrunsins hefur verið leiðinlegt andrúmsloft á Íslandi. Hver fylkingin reynir að níða skóinn af hinni og í helstu og mikilvægustu áhrifastöðum situr fólk sem á að baki áratugalangan feril og mikla reynslu en hefur allt meira og minna mótast í átakahefð sem er vont veganesti. Hér skal hvergi á hæfileika og þekkingu þessa fólks hallað en við þurfum nýtt blóð, ný andlit og nýjan tón í umræðuna. Og þegar Ólafur Ragnar segir afdráttarlaust að hann sé á förum – sem hann þarf að gera ekki seinna en í þessari viku – munu efnilegir kandídatar í embætti forseta Íslands bókstaflega ganga út úr álfaborgunum og þykja svo efnilegir að allir vildu Lilju kveðið hafa. sbs@mbl.is
Morgunblaðið þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - Pistill - Sigurður Bogi Sævarsson.
Sigurður Bogi Sævarsson.
.
Hér skráð af: Björn Ingi Bjarnason
nánar
07. 02. 2012 kl. 07:37 - Georg Rúnar Ragarsson varð 30 ára 2. febrúar 2012
.
.
.
07. 02. 2012 kl. 07:37 - Georg Rúnar Ragarsson varð 30 ára 2. febrúar 2012
Flateyringurinn Georg Rúnar Ragnarsson varð 30 ára þann 2. febrúar s.l. Fjölskylda, ættingjar og vinir komu honum verulega á óvart með afmælisinnrás laugardagskvöldið 4. febrúar á heimili hans og kærustu í Hafnarfirði.
Gróa G. Haraldsdóttir skrífar á Facebook um atburðinn:
Okkur tókst það..........já við náðum að hafa óvænt afmæli fyrir hann Georg Rúnar
Við mættum heim til Georgs og Kömmu (Kamma var með í plottinu) um klukkan hálf níu í gærkvöld (laugardagskvöldið 4. feb.) og gerðum innrás á heimilið þeirra, með gítar, tertu (sem Dóri gerði) kjötsúpu (sem frúin ég bjó til) og góða skapið....við vorum rúmlega 40 manns.....og svipurinn á syni mínum er við mættum, var óborganlegur !!!
Já þetta var sko skemmtilegt kvöld :)
Takk allir sem tóku þátt í þessu og mættu ♥ ♥ ♥
.
Meðfylgjandi myndir tóku; Ásta Björnsdóttir og Björn Ingi Bjarnason.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
Skráð af: Björn Ingi Bjarnason
nánar
06. 02. 2012 kl. 21:57 - Prjónakaffi Önfirðinga annað kvöld, þriðjudagskvöldið 7. febrúar kl. 20
Hildur Guðnadóttir.
06. 02. 2012 kl. 21:57 - Prjónakaffi Önfirðinga annað kvöld, þriðjudagskvöldið 7. febrúar kl. 20
Prjónakaffi Önfirðinga annað kvöld, þriðjudagskvöldið 7. febrúar kl. 20:00
í Ömmu mús – handavinnu hús, Ármúla 18.
Dýrfirðingar hvattir til að koma og vera með.
Kær kveðja,
Hildur Guðnadóttir, Tengdadóttir Önundarfjarðar
.

.
nánar
fleiri fréttir
Saga Félagsins |
||
| 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 |
||
Síður Önfirðinga |
||
Hér getur þú sent inn tengilinn þinn til að vera sýnilegur öðrum. Til að koma tenglinum á skráðu þig hér og tenglinum verður bætt á listann. Ásbjörn Björgvinsson |
||




