Heim  
  Fréttir  
  Máltæki  
  Netfangaskrá  
  Myndasafn  
  Síður Önfirðinga  
  Sögusíðan  
  Sólbakki 6  
  Ingjaldur  
  Hafðu samband  
 

 
 

Vestfirskar vefsíður

 
     
 

Björgunarsveitin Sæbjörg
Ísafjarðarbær
Bæjarins besta
Patreksfjörður
Tálknafjörður
Vesturbyggð
Þingeyri
Hólmavík
Súðavík
Suðureyri
Eyraroddi
Grænhöfði
Tankurinn hljóðver á Flateyri
Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
Vestfirdir.is
Ferðaþjónustan í Reykjanesi
Heydalur
Hótel Núpur
Kirkjuból í Bjarnardal
Hvíldarklettur
Skutull
Siggi Björns
Sjávarútvegur.is

 
 





Máltæki



- Margur bóndinn dregur dilk á eftir sér
- Það er of seint að byrgja barinn þegar barnið er dottið í það
- Sjaldan veldur einn þá tveir deila, nema deilt sé með þremur
- Enginn veit hvað átt hefur fyrr en flutt hefur
- Sjaldan fellur flaskan langt frá rónanum
- Róm var ekki brend á hverjum degi
- Betra er að ganga fram af fólki en björgum
- Fjarlægðin gerir fjöllin blá og langt til Húsavíkur
- Sjaldan er ein báran skökk
- Allt er hey í harðindum nema Hey babba lúlla she's my baby
- Betri er einn fugl í sósu en tveir í frysti
- Betra er að ráða menn með réttu ráði en ráðamenn
- Ekki er aðfangadagur án jóla
- Blankur er snauður maður
- Lengi lifa gamlar hræður
- Betra er langlífi en harðlífi
- Sá hlær oft sem víða hlær
- Margur sefur yfir sig sem vaknar ekki á réttum tíma
- Rangt er alltaf rangt, það er rétt
- Margur hefur farið flatt á hálum ís
- Sjaldan er góður matur of oft tugginn
- Betri eru læti en ranglæti
- Betri er uppgangur en niðurgangur
- Oft er virtur maður ekki virtur viðlits
- Enginn veit sína kæfuna fyrr en öll er 
- Betra er að standa á eigin fótum en annarra
- Þegar neyðin er stærst er hjálpin fjærst
- Oft er grafinn maður dáinn
- Oft veldur lítill stóll þungum rassi
- Oft er bankalán ólán í láni
- Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur frestað lengur
- Enginn verður óbarinn boxari
- Oft er dvergurinn í lægð
- Einsdæmi er að dæmigerðar dæmisögur séu dæmdar dæmalausar
- Oft eru læknar með lífið í lúkunum
- Blindur er sjónlaus maður
- Sjaldan fellur róninn langt frá flöskunni
- Eitt sinn skal hver fæðast
- Ekki dugar að drepast
- Fátt smátt gerir lítið eitt eða ekki neitt
- Illu er best ólokið
- Sjaldan fellur gengið langt frá krónunni
- Bændur eru bændum verstir og neytendum líka
- Eftir höfðinu dansar limurinn
- Flasa er skalla næst
- Margur slökkviliðsmaðurinn er eldklár
- Margur geispar golunni í blankalogni
- Sjaldan fara sköllóttir í hár saman
- Oft eru bílstjórar útkeyrðir
- Margur miljónamæringurinn á ekki baun í bala - bara peninga
- Nakinn er klæðalaus maður
- Sá er talinn vel geðveikur sem Guð talar til
- Betra er að hlaupa í spik en kekki
- Oft láta bensínafgreiðslumenn dæluna ganga
- Fiskisagan flýgur en fiskimaðurinn lýgur
- Flestar gleðikonur hafa í sig og á
- Oft fýkur í menn sem gera veður útaf öllu
- Margur fer yfir Strikið - í Kaupmannahöfn
- Sjaldan eiga fiskar fótum fjör að launa
- Minkar eru bestu skinn
- Margur nautabaninn sleppur fyrir horn
- Betra er að drepa tímann en sjálfan sig
- Betra er að vera sí-virðulegur en svívirðilegur
- Hungraður maður gerir sér mat úr öllu
- Betra er að vera eltur en úreltur
- Oft kemst magur maður í feitt
- Oft eru lík fremur líkleg
- Betra er áfengi en áfangi
- Ei var hátíð fátíð í þátíð
- Heima er best í hófi
- Margur leggur "mat" á disk
- Betra er að ná áfanga en að ná fanga
- Sá er talinn trúaður sem talar til Guðs
- Betra er að teyga sopann en teygja lopann
- Oft fer presturinn út í aðra sálma
- Víða er þvottur brotinn
- Oft fara bændur út um þúfur
- Oft eru bílstjórar vel á veg komnir
- Það er gömul lumma að heitar lummur seljist eins og heitar lummur
- Margur fær sig fullsaddan af hungri
- Betri er utanför en útför
- Oft svarar bakarinn snúðugt
- Oft er lag engu lagi líkt
- Margur bridsspilarinn lætur slag standa
- Oft hrekkur bruggarinn í kút
- Margur bílstjórinn ofkeyrir sig
- Margri nunnu er "ábótavant"
- Greidd skuld, glatað fé
- Betra er að fara á kostum en taugum
- Hagstæðara er að borga með glöðu geði en peningum
- Oft eru dáin hjón lík
- Oft fara hommar á bak við menn
- Auðveldara er að fá leigt í miðbænum en guðanna bænum
- Oft fer bakarinn í köku, ef honum er gefið á snúðinn
- Til þess eru vítin að skora úr þeim
- Oft verða slökkviliðsmenn logandi hræddir
- Betra er að sofa hjá en sitja hjá
- Betri eru kynórar en tenórar
- Margur boxarinn á undir högg að sækja



03.07.2009 kl. 06:34

Strandveiðar út frá Flateyri

Vigdís Erlingsdóttir, framkvæmdastjóri Eyrarodda á Flateyri. Ljósm.: BIB

Strandveiðar út frá Flateyri

Eyraroddi hf. býður útgerðaraðila velkomna til Flateyrar og óskar eftir viðskiptum við þær útgerðir sem kjósa að gera út frá Flateyri.

Eyraroddi hf sér um alla löndun og útvegar ís og fiskikör, sé þess óskað. Beitingarþjónusta er jafnframt í boði. Gistiaðstaða er næg á Flateyri og útgerðum í viðskiptum við Eyrarodda hf. boðið frítt í sund á Flateyri eins og öðru starfsfólki Eyrarodda hf.

Á Flateyri er rekinn barinn og veitingarstaðurinn Vagninn. Söluskáli N1 er opinn alla daga og útibú Sparisjóðsins, ásamt póstþjónustu, er opið eftir hádegi alla virka daga.

Áhugasömum er bent á að hafa samband við Sigurð Þórisson, verksmiðjustjóra, í síma 456-0101 eða 861-8975.

.Eyraroddi hf

Eyraroddi hf. er fiskvinnslufyrirtæki á Flateyri sem hóf göngu sína haustið 2007. Hluthafar þess eru 5 talsins. Stærsti eigandinn er Oddatá ehf., sem er félag í eigu Kristjáns Erlingssonar og fjölskyldu.

Eyraroddi hf. sérhæfir sig í vinnslu á línu- og handfæraveiddu hráefni, aðallega þorski fyrir Spánarmarkað. Unnar eru jafnframt afurðir úr ýsu og steinbít fyrir markaði í Bretlandi, Þýskalandi og Frakklandi. Ávallt er unnið úr besta mögulega hráefni enda skipta áreiðanleiki og gæði afurða meira máli en magn. Reynsla og þekking starfsfólks Eyrarodda hf. er svo ástæðan fyrir árangri fyrirtæksins við að framleiða gæðavöru fyrir kröfuharðan alþjóðlegan markað.

Frá miðbiki 19. aldar hefur verið stunduð útgerð á Flateyri. Góð hafnaraðstaða er á Flateyri og stutt að fara á gjöful fiskimið. Áratuga löng reynsla býr að baki fiskivinnslu á Flateyri. Þess má geta að léttsöltuð og lausfryst þorskflök eiga uppruna sinn til þróunar og markaðssetningu Hjálms hf. á níunda áratugnum í vinnsluhúsi Eyrarodda hf. Sú vara hefur á seinni tíma náð miklum vinsældum, sérstaklega á Spáni, og er enn þann daginn í dag ein aðal útflutningsvara Eyarodda hf.

Hjá Eyrarodda hf. vinna nú um 40 manns. Framkvæmdastjóri félagsins er Vigdís Erlingsdóttir. Formaður stjórnar er Teitur Björn Einarsson.

Teitur Björn Einarsson, stjórnarformaður Eyrarodda á Flateyri.

Sjá: www.eyraroddi.is

Hér skráð af: Björn Ingi Bjarnason.

 
11.11.2008 kl. 15:07

Námskeið í félagsmálafræðslu: "Sýndu hvað í þér býr"

Frá vinstri Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, og Sigurlaug Viborg, forseti Kvenfélagasambands Íslands, eftir undirskriftina í höfuðstöðvum Ungmennafélags Íslands.
.
Námskeið í félagsmálafræðslu: "Sýndu hvað í þér býr"  

Ungmennafélag Íslands - Bændasamtök Íslands - Kvenfélagasamband Íslands.

Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Þessir aðilar skrifuðu nýlega undir samstarfssamning þar að lútandi í höfuðstöðvum UMFÍ við Laugaveg 170 í Reykjavík.

Hlutverk námskeiðsins er sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í ræðumennsku og fundarsköpum. 

Þátttakendur fá æfingu í framkomu, framsögn og þjálfun í fundarsköpum.

Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, sagði eftir undirskriftina vonast eftir því að námskeiðin yrði þátttakendum skemmtileg og umfram allt gagnleg. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, tók undir orð formanns UMFÍ og sagði tímasetningu námskeiðanna góða í þeim erfiðleikum sem samfélagið er að fara í gegn um einmitt um þessar mundir. Sigurlaug Viborg, forseti Kvenfélagasambands Íslands, lýsti ánægju með samstarfið sem væri kvenfélagasambandinu ómetanlegt. Hún vonaðist eftir að konur yrðu duglegar að taka þátt í námskeiðunum.

Sigurður Guðmundsson hefur verið ráðinn til að stjórna félagsmálafræðslunni en hann er íþróttafræðingur að mennt en sem slíkur útskrifaðist hann frá Háskólanum í Reykjavík á sl. vori.

Fyrstu námskeiðin hafa þegar verið haldið í Litlu-Laugaskóla í Þingeyjarsýslu og að Þelamörk í Hörgárbyggð. Ákvarðanir um fundarstaði í vetur munu birtast í fjölmiðlum og á heimasíðum samstarfsaðila.

Áhugasömum er einnig bent á að afla sér frekari upplýsingar um verkefnið hjá Guðrúnu Snorradóttur landsfulltrúa UMFÍ í síma 848-5917 og á gudrun@umfi.is og Sigurði í síma 861-3379 og á sigurdur@umfi.is

Af: www.umfi.is

Hér skráð af: Björn Ingi Bjarnason.

 
Síða 1

 
 

 
 

Saga Félagsins

 
     
  1993
1994
1995
1996
1997
1998
1999
2000
2001
2002
2003
2004
2005
2006
2007
2008
2009
2010
 
 

 
 

Síður Önfirðinga

 
     
 

Hér getur þú sent inn tengilinn þinn til að vera sýnilegur öðrum. Til að koma tenglinum á skráðu þig hér og tenglinum verður bætt á listann.

Ásbjörn Björgvinsson
Ágúst Pétursson Vagnheimar
Catalina


Eiríkur Finnur Greipsson
Eyraroddi
Eyþór Jóvinsson
Félagsbær
Gistiheimili Áslaugar og Faktorshúsið í Hæstakaups
Gógó
Gretar Þór Sæþórsson
Guðmundur Jónas Kristjánsson
Guðrún Pálsdóttir
Guðjón Hermannsson
Haraldur Sturlaugsson
Hekla Björg Jónsdóttir
Kirkjuból í Valþjófsdal 
Kristján Ásgeirsson
Kvenfélag Mosvallahrepps
Magnea Kristjana Guðmunsdóttir
Magni Rúnar Magnússon
Páll Önundarson
Sigurður Björnsson
Sigurður Hafberg
Stokke Kommune
Sölvi Bragason
Valtýr Gíslason
Veflausn.is
Þorsteinn Traustason
Önfirðingafélagið í Reykjavík

Önundur H. Pálsson

 
 


Önfirðingafélagið í Reykjavík - flateyri(hjá)flateyri.is