| Heim | ||
| Fréttir | ||
| Máltæki | ||
| Netfangaskrá | ||
| Myndasafn | ||
| Síður Önfirðinga | ||
| Sögusíðan | ||
| Sólbakki 6 | ||
| Ingjaldur | ||
| - Álfadalur | ||
| - Ástún | ||
| - Brekka | ||
| - Hraun | ||
| - Sæból | ||
| - Villingadalur | ||
| - Vonaland | ||
| Hafðu samband | ||
Sæból

Sæból er kirkjustaður og bær yst við vestanverðan Önundarfjörð. Þar var kirkjan helguð Maríu guðsmóður, Jóhannesi postula, Magnúsi Eyjajarli, Þorláki biskupi og Katrínu mey í kaþólskri tíð. Var henni þjónað frá Núpi í Dýrafirði.
Til eru margar sögur af Sæbólsbændum. Á einn að hafa verið drepinn af misgáningi af sýslumanni sem taldi hann vera sjódrukknaðan draug. Á 17. og 18. öld bjó þar Mála-Snæbjörn sem stundaði stöðug málaferli við ýmsa höfðingja landsins. Var hann talinn slyngur að flækja málin og komast vel út úr þeim. Á Sæbóli eru fornar tóftir.
Núverandi kirkja, steinkirkja, var vígð 1924 þar sem gamla kirkjan fauk í óveðri og brotnaði í spón. Altarisgráður og bekkir eru útskornir af Jóni Sveini Jónssyni bónda á Sæbóli sem var bróðir Guðmundar Jónssonar útskurðarmeistara á Ísafirði. Skírnarsáinn er verk Guðmundar Einarssonar frá Miðdal. Elsti gripur kirkjunnar er ljósahjálmur úr kopar frá 1649. Á hann eru letruð mörg útlensk karlmannsnöfn og er talið að hann sé gjöf frá erlendri skipshöfn sem bjargast hafi við Ingjaldssand. Aðrir fornir gripir eru kaleikur og patína frá 1733 og 1776.
Utan á kirkjunni er ljósakross sem gefinn var til minningar um séra Sigtrygg Guðlaugsson á Núpi sem þjónaði útkirkjunni að Sæbóli í 23 ár. Sandsheiði liggur á milli kirknanna og er talið að séra Sigtryggur hafi gengið hana 900 sinnum áður en hann var lagður þar til hvílu í hinsta sinn.
Sæból er höfuðjörð Sandsins og ein af vildisjörðum Vestfjarða, sem höfðingjar litu jafnan hýru auga. Ýmsir þeirra sátu jörðina sjálfir. Hún ber þess þó fáar minjar. Þó er talið, að enn megi benda á akra Þorkötlu ríku, og legsteinn á leiði hennar og manns hennar, Eggerts yngra Sæmundssonar, er enn í kirkjugarðinum á Sæbóli, og er vonandi, að hann verði ekki látinn mosavaxa og grafast í jörðu.
Sæból hefir í margar aldir verið kirkjustaður. Þar er nú snotur steinkirkja. Á Sæbóli er þríbýli. Standa bæirnir yzt í dalnum út undir fjallshlíðinni og spölkorn uppi á bökkunum. Kafli úr bókinni: Aldarfar og örnefni í Önundarfirði eftir Óskar Einarsson. Iðunn, 1951.

| 14.10.2007 kl. 22:39 |
Þjóðrækni |
| 2.tbl. Sæbóli 23. mars 1930 21.árg |
| nánar |
| 14.10.2007 kl. 22:38 |
Smámunir |
| 3.tbl. Sæbóli 23. desember 21.árg |
| nánar |
| 14.10.2007 kl. 22:37 |
Sjálfstæðir |
| 1.tbl. Sæból 2. feb 1930 21.árg |
| nánar |
| 14.10.2007 kl. 22:37 |
Erlendir ferðamenn |
| 2.tbl. Sæbóli 23. mars 1930 21.árg |
| nánar |
| 14.10.2007 kl. 22:36 |
Brot úr minningum - “Öxar við ána” |
| 3.bl. Sæbóli 23. desember 21.árg |
| nánar |
Saga Félagsins |
||
| 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 |
||
Síður Önfirðinga |
||
Hér getur þú sent inn tengilinn þinn til að vera sýnilegur öðrum. Til að koma tenglinum á skráðu þig hér og tenglinum verður bætt á listann. Ásbjörn Björgvinsson |
||




