| Heim | ||
| Fréttir | ||
| - Eldri fréttir | ||
| - Eldri vefur | ||
| Máltæki | ||
| Netfangaskrá | ||
| Myndasafn | ||
| Síður Önfirðinga | ||
| Sögusíðan | ||
| Sólbakki 6 | ||
| Ingjaldur | ||
| Hafðu samband | ||
Fréttir | |
31. 07. 2010 kl. 10:47 "Sá glampann í drengnum" segir Önfirðingurinn Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir | |
| Deila | |
Önfirðingarnir og systurnar. F.v.: Þórunn og Helga Erlu og Valdimarsdætur. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason. 31. 07. 2010 kl. 10:47 "Sá glampann í drengnum" segir Önfirðingurinn Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir Matthías Jochumsson skáld og þýðandi fæddist 11. nóvember 1835 að Skógum í Þorskafirði. Í ár eru því 175 ár frá fæðingu hans. Matthías Jochumsson skáld og þýðandi fæddist 11. nóvember 1835 að Skógum í Þorskafirði. Í ár eru því 175 ár frá fæðingu hans. Málþing verður haldið af því tilefni að Nýp á Skarðsströnd í dag á milli klukkan þrjú og fimm. Kristján Árnason, þýðandi og bókmenntafræðingur, mun flytja erindi um þýðingar og skáldskap Matthíasar og Önfirðingurinn Þórunn Erlu Valdimarsdóttir, sagnfræðingur og rithöfundur, fjalla um bernsku skáldsins. "Það er vel við hæfi að halda málþingið að Nýp því Matthías var fæddur við Breiðafjörðinn, ekki langt frá Skarðsströndinni, því það var svo mikill samgangur á sjó í gamla daga," byrjar Þórunn þegar hún er beðin að gefa lesendum smá hugmynd um það sem hún ætlar að bera fram fyrir gesti málþingsins. "Ég ætla að byrja á barnæskunni og fara miklu lengra og nota myndir með. Ég á svo mikið efni, bæði í myndum og máli," lýsir hún en eins og margir muna skrifaði Þórunn ævisögu Matthíasar, Upp á Sigurhæðir, sem kom út 2006. Hún rifjar fúslega upp glefsur sem einmitt tengjast Dölunum. "Matthías var sendur til prestsins að Kvennabrekku í Dölum sem var móðurbróðir hans og margverðlaunaður fyrir landbúnaðarafrek en hafði engan sérstakan áhuga á þessum unga frænda sínum og fattaði ekkert að hann væri séní. Matthías var sár. Bestu stundirnar meðan á þessari dvöl stóð átti hann í seli þar sem hann dvaldi í tvö sumur. Hjá prestinum var í vinnumennsku kona sem hét Guðný og hún, þessi elska, átti hefti af ljóðmælum Jónasar Hallgrímssonar. Matti kunni að lesa og hann fékk þessa bók lánaða í selið og lærði utan að. Þetta var svo góð kona, hún sá glampann í drengnum og byggði hann upp. Þetta er sá hluti ævi Matthíasar sem tengist Dalasýslu mest." Þórunn kveðst hafa farið í vettvangsferðir vestur að Breiðafirði þegar hún vann að heimildarvinnunni fyrir bókina, meðal annars gengið upp að seljum í grösugum dölum og mælir eindregið með slíkri útvist fyrir þá sem ekki vilji príla um einhverja leggjabrjóta. Spurð hversu lengi sé verið að keyra vestur á Skarðsströnd svarar hún. "Ég tók nú aldrei tímann en maðurinn minn giskar á tvo og hálfan tíma. Rétt fyrir ofan Bifröst í Borgarfirði er vegurinn upp á Bröttubrekku sem er malbikaður. Þegar komið er þar yfir er maður eiginlega kominn á Skarðsströndina." Hún lýkur lofsorði á framtak Þóru Sigurðardóttur myndlistarkonu að opna menningarsetur að Nýp. "Það er bara dásamlegt fyrir þjóðina að fá á kortið enn einn stað með menningu. Ekki síst eftir hrun og niðurlægingu. Það er svo gott að græða sárin með einhverju sem er einhvers virði."
Matthías Jochumsson. Ljósmynd Sigfús Eymundsson. . Fréttablaðið laugardagurinn 31. júlí 2010. Hér skráð af: Björn Ingi Bjarnason. . Til baka |
Saga Félagsins |
||
| 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 |
||
Síður Önfirðinga |
||
Hér getur þú sent inn tengilinn þinn til að vera sýnilegur öðrum. Til að koma tenglinum á skráðu þig hér og tenglinum verður bætt á listann. Ásbjörn Björgvinsson |
||





