| Heim | ||
| Fréttir | ||
| - Eldri fréttir | ||
| - Eldri vefur | ||
| Máltæki | ||
| Netfangaskrá | ||
| Myndasafn | ||
| Síður Önfirðinga | ||
| Sögusíðan | ||
| Sólbakki 6 | ||
| Ingjaldur | ||
| Hafðu samband | ||
Fréttir | |
29. 07. 2010 kl. 20:40 - Sandkastalakeppnin í Holti á laugardaginn 31. júlí | |
| Deila | |
Sandkastalakeppnin verður í Holti á laugardaginn 31. júlí kl. 14:00 29. 07. 2010 kl. 20:40 - Sandkastalakeppnin í Holti á laugardaginn 31. júlí Árviss sandkastalakeppni fer á Holtssandi í Önundarfirði kl. 14 á laugardag en hún er fastur liður um verslunarmannahelgina fyrir vestan. Þetta verður í fjórtánda sinn sem keppnin er haldin en hvítur sandurinn í Holtsfjöru þykir henta einstaklega vel til sandkastalagerðar og hefur keppnin laðað til sín fjöldann allan af fólki í áraraðir. Arkitektar og byggingatæknifræðingar á sviði sands hafa margir hverjir verið iðnir upp á síðkastið við að undirbúa sig, en margir mæta á svæðið með fullkomnar teikningar og byggingaráætlanir. Enda til mikils að vinna þar sem veitt verða vegleg verðlaun fyrir fyrsta, annað og þriðja sætið en einnig verða veitt aukaverðlaun. Verðlaunin eru í boði Sparisjóðs Keflavíkur líkt og síðustu ár. Flestir láta sér þó nægja ánægjuna af því að vera með og hafa gaman af. Hér skráð af: Björn Ingi Bjarnason.
Guðmundur R. Björgvinsson. Ljósm.: Páll S. Önundarson. . Til baka |
Saga Félagsins |
||
| 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 |
||
Síður Önfirðinga |
||
Hér getur þú sent inn tengilinn þinn til að vera sýnilegur öðrum. Til að koma tenglinum á skráðu þig hér og tenglinum verður bætt á listann. Ásbjörn Björgvinsson |
||




