| Heim | ||
| Fréttir | ||
| - Eldri fréttir | ||
| - Eldri vefur | ||
| Máltæki | ||
| Netfangaskrá | ||
| Myndasafn | ||
| Síður Önfirðinga | ||
| Sögusíðan | ||
| Sólbakki 6 | ||
| Ingjaldur | ||
| Hafðu samband | ||
Fréttir | |
07.02. 2010 kl. 17:27 - Heislugæslan á Cafe Catalinu, Kópavogi 12. og 13. febrúar | |
| Deila | |
. 07.02. 2010 kl. 17:27 - Heislugæslan á Cafe Catalinu , Kópavogi 12. og 13. febrúar Heilsugæslan verður sýnd á Cafe Catalinu, Hamraborg 11 Kópavogi, föstudaginn 12. febrúar og laugardaginn 13. febrúar n.k. kl. 21:00 bæði kvöldin. Miðasala hafin á Cafe Catalinu og er þegar uppselt á sýninguna 13. febrúar. Pöntunarsími: 554-2166 Heilsugæslan - hápólitískur gamanleikur! Við hrósum okkur yfir háum meðalaldri, þjónustu í hæsta gæðaflokki og frábærum læknum. En er kerfið eins gott og af er látið? Er það hugsanlega farið að vinna gegn tilgangi sínum? Er aukinni eftirspurn sjúkdóma svarað með meira framboði? Hvaða tilgangi þjónar góð heilsa? Metum við líf í magni eða gæðum? Leikritið Heilsugæslan,er samið af lækni, Lýð Árnasyni á Flateyri, og gefur áhorfandanum sýn inn í þetta völundarhús og það sem býr að tjaldabaki. Heilsugæslan er gamanleikur og öll hlutverk í höndum tveggja leikara, þeirra Elfars Loga Hannessonar og Margrétar Sverrisdóttur. Sýningin er ein klukkustund. Heilsugæslan er hápólitískt leikrit og umfjöllunarefnið brennandi á íslenzku þjóðfélagi, ekki sízt núna, í skugga niðurskurðar. . Heilsugæslan fyrir alla!! Gestir á Heilsugæslunni fyrr í vetur á Cafe Catalinu skemmtu sér vel. Sýningar verða þar 12. og 13. febrúar n.k. og er þegar uppselt þann 13. Ljósmyndir: Sigríður Samsonardóttir. Skráð af: Björn Ingi Bjarnason. . Til baka |
Saga Félagsins |
||
| 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 |
||
Síður Önfirðinga |
||
Hér getur þú sent inn tengilinn þinn til að vera sýnilegur öðrum. Til að koma tenglinum á skráðu þig hér og tenglinum verður bætt á listann. Ásbjörn Björgvinsson |
||




